C-2229935
Coleman
Coleman Fastpitch Victoria Falls 4 BlackOut tjald
179.995 Kr
Coleman kynnir hér til leiks nýtt tjald - og það sem meira er, nýja tækni við að tjalda því. Victoria Falls tjaldið er búið fjórum öflugum stálsúlum sem er búið hinni nýju tækni frá Coleman FastPitch sem auðveldar til muna á fljótlegan og einfaldan hátt að reisa tjaldið. Þetta tjald er rúmgott, hefur rúmgóða forstofu og stór aðskilin svefnrými sem rúma allt að 4 manneskjur. Hægt er að fjölga svefnrýmum enn frekar með því að setja annað slíkt upp í forstofurýminu, sú viðbót er seld sér. Þetta tjald er með Coleman Blackout Bedroom tækni til að fá lengri og betri svefn með því að halda birtu íslenskara sumarnótta í skefjum.
Tækni fyrir myrkvunar svefnherbergi - Coleman® BlackOut svefnherbergistækni er byltingarkennt kerfi fyrir tjaldgesti. Sérhannað tjaldefni lokar fyrir allt að 99% af dagsbirtu frá svefnrýminu og heldur því allt að 5°C svalara yfir daginn! Fáðu lengri og betri svefn án truflunar miðnætur birtunnar.
FastPitch er nýstárleg tækni sem gerir fólki kleift að tjalda á mun skemmri tíma samanborið við hefðbundin tjöld. Járnsúlurnar sem mynda burðargrindina eru fastar á tjalddúkknum og sparast þar með tími og fyrirhöfn við að þræða þær í tjaldið og dregur úr tíma og fyrirhöfn við uppsetningu. Tjaldið er tekið úr burðarpokanum og rúllað út á hentugum grasfleti, tjaldið er því næst hælað niður á fjórum hornum þess og súlurnar dregnar út og smelltar í uppréttar stöður - þar með tjaldið klárt til að bera búnað inn í það.
Vatnsheld og vindheld - Öll tjöld frá Coleman® hafa verið hönnuð til að standast veður og vind og veita framúrskarandi vatns- og vindvörn til að halda þér og fjölskyldu þinni öruggri og þurrum.
Eldvarnarefni - Efnið tryggir að það fuðri ekki upp stjórnlaust ef eldur berst að því og slokknar sjálfkrafa, sem veitir fólki tíma til að forða sér tímanlega út í neyðartilvikum.
Höfuðhæð - Með næstum 2 metra lofthæð er hægt að standa þægilega uppréttur í forstofu tjaldsins.
- Stærð: 2,8 x 5,7 x 2 m
- Fjöldi (manns): 4 manna
- Uppsetning tjalds: Fastpitch
- Burðartaska: Já
- Svæði (svefnrými, forstofa, andri): Svefnrými og forstofa
- Fjöldi svefnrýma: 2
- Breidd svefnrýma: 2 x 130 cm
- Stærð svefnrýmis: 16 m²
- Geymslurými: Já
- Tegund tjalds: Grind
- Innra efni: Öndunarhæft polyester / No-see-um möskvi
- Tegund inngangs: Venjulegur inngangur
- Myrkvunartækni BlackOut:Já
- XXL svefnherbergi: Nei
- Forstofurými (m²): 10 m²
- Hæfni í uppsetningu: Auðvelt
- Höfuðhæð: 185 cm
- Tegund súla: Stál
- Saumar: Límband
- Efni botns: PE, Soðið, fullkomlega samþætt
- Grunnplata fullkomlega samþætt: Já
- Ytra efni: Polyester PU húðað/Eldvarnarefni
- Vatnsþol (mm): 4500 mm
- Gluggar (fjöldi): 1
- UV vörn: Já
- Vatnshelt: Já
- Eldvarnarefni: Já
- Pakkastærð: 118 x 34 x 34 cm
- Þyngd (kg): 22 kg
- Burðartaska innifalin: Já
- Efni burðartösku: 100% Polyester



















